Sími 544 4450Grensásvegur 13, 108 Reykjavík
Bóka tíma

Sérfræðingar í útlitslækningum í yfir 20 ár

Húðlækningar og lasermeðferðir undir eftirliti húðlæknis að Grensásvegi 13. Faglegar ráðleggingar sérfræðilæknis og nýjasta tækni, í notalegu umhverfi.

OpnunartímiOpið frá 8–16
Hvar viltu bæta?

Kinnar og nef

Verð frá samkvæmt verðskrá 2026. Sérfræðilæknir metur í hverju tilfelli hvaða meðferð hentar.

Bolli Bjarnason dr. med. á stofunni
Bolli Bjarnason dr. med., húð- og kynsjúkdómalæknir

Alltaf fagleg ráðgjöf sérfræðilæknis

Við bjóðum upp á faglega og persónulega þjónustu viðurkenndra sérfræðinga í notalegu umhverfi. Okkar þekking er þinn hagur. Við notum þekktar og öruggar aðferðir til að hjálpa þér að ná þínum markmiðum, betra útliti og húðheilsu.

Lasermeðferðir í fegrunarskyni eru bannaðar á Íslandi án aðkomu viðeigandi sérfræðilæknis, svo sem húðlæknis.Vegna fjölmargra kvartana var sett reglugerð um lasermeðferðir í fegrunarskyni. Við vörum við ólöglegri notkun lasera meðferðaraðila án læknismenntunar. Sjá reglugerð nr. 171/2021.
  • 1999Varði doktorsritgerð um lasertækni og ofnæmi við Karolinska Institutet í Stokkhólmi
  • 9 árStarfaði á sjúkrahúsum, göngudeildum og læknastofum í Bandaríkjunum, Svíþjóð og Danmörku
  • 2001Flutti til Íslands og kennir læknanemum húðsjúkdóma við læknadeild Háskóla Íslands
  • Í dagStjórnarmaður í Norðurlandaráði húðlækna og situr í ritstjórn Forum for Nordic Dermato-Venereology
Um Útlitslækningu og starfsfólk

Hvar í húðinni vinnur meðferðin?

Mismunandi tækni vinnur á ólíkum lögum húðarinnar. Veldu meðferð og sjáðu hvar hún vinnur.

HúðþekjaLeðurhúðHúðbeður (fitulag)Vöðvi
Hvar í húðinni?

Létt fractional laser (non-ablative)

Tæknin veitir öflugum lasergeislum inn í húðina án þess að skaða hana, því eingöngu hluti meðferðarsvæðisins verður fyrir geislunum.

Svæði
Leðurhúð. Yfirborð húðarinnar helst heilt.
Eftir meðferð
Unnt er að fara til vinnu samdægurs.
Fjöldi skipta
Oft eru veitt 10 skipti til góðs árangurs.

Svona gengur þetta fyrir sig

Við mælum með tíma hjá húðlækni áður en meðferð er bókuð, til að tryggja rétta greiningu og viðeigandi meðferð.

  1. 1

    Tími hjá húðlækni

    Hringdu í 544 4450 eða sendu fyrirspurn. Þú getur fengið tíma hjá húðlækni eða beint í meðferð.

  2. 2

    Mat og meðferðaráætlun

    Sérfræðilæknir metur hvert tilfelli. Stundum á lyfjameðferð betur við, stundum laser og stundum hvort tveggja.

  3. 3

    Meðferð

    Meðferðir eru unnar undir eftirliti húðlæknis og við notum aðeins lasera í hæsta mögulega gæðaflokki.

  4. 4

    Eftirfylgni

    Endurkoma til eftirfylgni og mats á árangri. Víða er 15% afsláttur þegar greidd eru 3 skipti saman.

Bóka tímaReikna áætlað verð
Húðflúr, staða 01: UpphafHúðflúr, staða 02: Meðferð hafinHúðflúr, staða 03: Greinileg framvindaHúðflúr, staða 04: Nýjasta staða
Raunverulegt dæmi

Húðflúrið dofnar smám saman

Myndirnar sýna hvernig húðflúr dofnar hjá okkur á meðan á meðferð stendur. Árangur og fjöldi meðferða er mismunandi eftir húðflúri og einstaklingi.

„Venjulegir“ laserar vinna á svörtum og rauðum litum. Okkar laser er einnig dye laser sem vinnur í 585 nm og 650 nm og getur þannig unnið á öllum litum.

Um húðflúrseyðingu
Biðstofa Útlitslækningar

Afslappað andrúmsloft

Við viljum að þeim sem til okkar leita líði vel og leggjum metnað í að bjóða ávallt upp á nýjustu tækni og aðferðir.

Heimilisfang
Grensásvegur 13, 108 Reykjavík
Í sama húsi og Pfaff, beint á móti Hreyfilshúsinu. Við erum á þriðju hæð.
Tannlækningar
533 1155
Opnunartími
Opið frá 8–16
RestylaneJuvédermAllergan Aesthetics