Sími 544 4450Grensásvegur 13, 108 Reykjavík
Bóka tíma

Slök húð utan andlits og háls

Fellingar og húðpokar myndast oft á upphandleggjum, kvið og lærum. Öldrun húðarinnar leiðir til slakleika hennar vegna visnunar leðurhúðarinnar, m.a. með tapi á kollageni.

Í hnotskurn

  • Fractional lasermeðferð stinnir og þéttir húðina og vinnur þannig gegn slakleika
  • Meðferð með útvarpsbylgjum og púlssogi með Velashape III
  • Stundum er æskilegt að eyða fitu fyrir meðferð með kælifitueyðingu
  • Meðferðirnar eru sársaukalausar og hægt er að fara beint til vinnu

Hvar í húðinni vinnur meðferðin?

HúðþekjaLeðurhúðHúðbeður (fitulag)Vöðvi
Hvar í húðinni?

Velashape III®

Tvískautaðar útvarpsbylgjur, púlssog, innrauð ljósorka og vélrænar rúllur hita húðvef og örva myndun kollagens.

Svæði
Leðurhúð og fituvefur.
Eftir meðferð
Vægur roði. Unnt er að fara beint til vinnu að lokinni meðferð.

Verð

Létt fractional lasermeðferð

Slök húð, ör, húðslit, opin húð og litabreytingar. Létt meðferð þar sem unnt er að fara til vinnu samdægurs.

Svæði / verklýsing27 ára og eldri3 skipti, 15% afsl.Yngri en 27 ára
Munnsvæði34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
Efri vör34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
Andlit62.353 kr.53.000 kr.53.000 kr.
Augnsvæði34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
Andlit og háls72.941 kr.62.000 kr.62.000 kr.
Andlit, háls og undirhaka72.941 kr.62.000 kr.62.000 kr.
Háls og undirhaka34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
Kinnar og kjálkalína62.353 kr.53.000 kr.53.000 kr.

+ 7 fleiri línur í verðskrá

Velashape III®

Við slakri húð, svo sem á kvið, útlimum og undirhöku, og fyrir appelsínuhúð.

Svæði / verklýsing27 ára og eldri3 skipti, 15% afsl.Yngri en 27 ára
Meðferð á stökum líkamshluta, t.d. kvið, lærum, upphandleggjum eða undirhöku39.412 kr.33.500 kr.33.500 kr.
Aukaskipti innan hálfs árs eftir 3 meðferðir, allt að 9 skipti34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
Kviður, 2 meðferðir í sömu komu, eða 2 líkamshlutar í sömu komu65.882 kr.56.000 kr.56.000 kr.
Aukaskipti innan hálfs árs eftir 3 meðferðir, allt að 9 skipti (2 líkamshlutar)56.000 kr.47.600 kr.47.600 kr.

Verð pr. skipti. Sjá alla verðskrána og reikna áætlað verð.

Nánar um meðferðina

Fræðsluefnið á vefnum er samið af Bolla Bjarnasyni dr. med., húð- og kynsjúkdómalækni.

Fjallað er um andlit og háls annars staðar.

Myndband

Húðstinning og húðþétting með réttum húðlaser fyrirbyggir slakleika húðarinnar og vinnur á móti honum. Við notum „fractional“ húðlasera til þessara nota. Til greina kemur þó í völdum tilfellum að beita Velashape III eftir mat sérfræðilæknis.

Hvað er meint með „slakri húð“ (sagging or loose skin)?

Hér er átt við að húðin sé losaraleg. Hún getur þá myndað áberandi húðpoka eða fellingar ekki síst á kjálkabörðum, upphandleggjum, kvið og lærum. Fyrir vikið getur fólk litið út fyrir að vera eldra en það virkilega er.

Ástæður eru m.a.:

• Öldrun húðarinnar leiðir til visnunar leðurhúðarinnar (dermis) með tapi á kollageni, hrörnunar á elastísku neti og vökvatapi.
• Sól leiðir til uppsöfnunar elastínsefnis í leðurhúðinni og með tímanum minnkar fitulag húðarinnar. Þetta leiðir til aukins slakleika húðarinnar og myndunar hrukkna, áberandi fellinga og húðpoka.
• Reykingar eru álitnar flýta öldrun húðarinnar mögulega vegna áhrifa á kollagen (collagen).
• Aðdráttarafl jarðar (gravity) veldur hrukkum (static rhytides) og áberandi fellingum.
• Ef fólk grennist hratt getur það leitt til slakleika húðarinnar.
• Slakleiki í húð getur einnig myndast eftir barnsburð og til eru læknisfræðilegar skýringar á honum.
• Velt er fyrir sér ættgengi í tenglsum við myndun slakrar húðar.

Meta þarf hvert tilfelli af sérfræðilækni m.t.t. Veitingu réttrar meðferðar og fyrirbyggjandi aðgerða.

Hvað er til ráða?

1. Sólarvarnir (sunscreens), þráavarnarefni (antioxidants) og retínóíðar (retinoids)

Þessir þættir vernda húðina og fyrirbyggja slakleika hennar. Einnig eru retínóíðar álitnir geta myndað nýtt kollagen í húðinni og stinnt hana þannig (Vísindagrein: Mukherjee S et al. Retinoids in the treatment of skin aging: an overview of clinical efficacy and safety. Clin Interv Aging. 2006 Dec; 1(4): 327–348).

2. Lasermeðferð

Slök húð, hrukkur, áberandi fellingar og húðpokar svara oft vel ólíkum laserum (leysum) sem sérvaldir eru í hverju tilfelli af sérfræðilækni. Kollagen húðarinnar myndast í trefjakímfrumum og endurmótast við lasermeðferðina en við það stinnist húðin sem bætir ástandið. Oftast er beitt svokölluðum „fractional“ lasermeðferðum sem fjallað er um hér. Um fractional lasertæknina sem slíka er fjallað annars staðar.

Grein

Æskilegt er að sérfræðilæknir meti hvort læknisfræðilegar eða aðrar ástæður hamli meðferð.

Við hverju eru fractional húðlaserar notaðir?

Fractional laserar eru aðallega notaðir til að:

1. Stinna húð hvar sem er á líkamanum, t.d. á útlimum, kvið, rasskinnum, andliti og á hálsi

Þetta fyrirbyggir og vinnur gegn slakleika í húðinni.

2. Eyða áberandi hrukkum, fellingum og húðpokum

Greinar

3. Eyða litlum hrukkulínum

4. Bæta ör eftir slys eða sjúkdóma, svo sem þrymlabólur

Myndband

Greinar

5. Draga úr húðsliti og öðru sem er óslétt á húðinni

Myndband

Grein

6. Vinna gegn sólskaða

Vinna gegn sólskaða

Myndband

Greinar

7. Eyða húðsvertingu (melasma)

8. Jafna yfirborð húðarinnar

Hver er verkunarháttur fractional lasera?

Húðlaser (leysir) er ljósorkugjafi. Hefðbundnir húðlaserar sem notaðir eru til húðmeðferða baða allt húðsvæðið með laserljósi. Þegar laser er sagður vera fractional (brot) er átt við að laserljósið baði eingöngu hluta húðsvæðisins með laserljósi. Fractional laserljósi er yfirleitt dreyft á staka staði yfir allt húðsvæðið. Eðlileg húð á milli staðana gerir mögulegt að gefa meiri ljósorku í fractional laserljósinu en ella því ef allt svæðið yrði fyrir slíkri ljósorku myndi húðin ekki þola hana.
Laserljósinu er ætlað að hnjaska húðina þar sem geislinn fer inn í húðina en eðlileg húð í kring flýtir fyrir “viðgerð” á hnjaskinu. Slík viðgerð hvetur til myndunar nýs kollagens sem leiðir til húðþéttingar og stinnari húðar.
Til eru 2 megingerðir fractional lasera. Annars vegar „ablative“ sem losa yfirborð húðarinnar frá undirlaginu og hins vegar „non-ablative“ sem gera það ekki.
Minni háttar takmarkanir gilda um fractional lasermeðferðir fyrir sum húðsvæði. Val búnaðar og beiting hans kallar á þekkingu sérfræðilæknis.
Dökk húð þolir fractional lasermeðferð betur en hefðbundna lasermeðferð.

Hvers er að vænta af lasermeðferð?

Fractional laserar eru mjög öflug tæki sem skila góðum árangri.

Aðgerðir fyrir og eftir lasermeðferð

• Aftra þarf snertingu við sólarljós í a.m.k. 4 vikur fyrir og eftir meðferð. Sólarlandaferðir eða sólbaðsstofur eru bannaðar á meðan á meðferð stendur og í 2 mán. eftir að henni lýkur.
• Sólartengdur roði eða brúnka þarf að hafa horfið algjörlega fyrir hvert meðferðarskipti.
• Brúnkukrem þurfa að hafa horfið algjörlega úr húðinni fyrir meðferð.
Æskilegt er að útsetja sig ekki fyrir miklum hita rétt fyrir og eftir meðferð svo sem heitum böðum.
• Mikilvægt er að ekki séu til staðar sár eða sýkingar í húðinni svo sem mikið af þrymlabólum. Sérfræðilæknir metur ástand húðarinnar fyrir meðferð.
Sérfræðilæknir tekur afstöðu til hvort útvortis eða innvortis lyfjameðferð þurfi að stöðvast á meðan á meðferð stendur.

Hvernig fer meðferðin fram?

Meðferðarsvæðið er hreinsað. Laserhausinn er færður til frá einum stað til annars eftir ákv. reglum. Meðferðir taka mismunandi langan tíma eftir umfangi en yfirleitt varir hvert meðferðarskipti ekki lengur en í 30 mín. Að henni lokinni er húðin kæld með sérstökum kælibúnaði.

Hve langt er milli meðferða og hve margar meðferðir þarf?

3-4 vikur eru látnar líða á milli lasermeðferða. Fjöldi lasermeðferðaskipta er mjög misjafn eftir laserum, lasermeðferðarsvæðum og einstaklingum

Hvenær kemur árangur meðferðar fram og hve lengi varir hann?

Árangur kemur fram hægt og rólega. Árangurinn er varanlegur.

Kostir lasermeðferðar

• Lasermeðferðir eru sársaukalitlar með þeim búnaði sem við notum.
• Þær eru mjög áhættulitlar.
• Unnt er að fara beint til vinnu að lokinni meðferð.

Gallar lasermeðferðar

• Lasermeðferð getur valdið roða sem gengur yfirleitt yfir á nokkrum klukkustundum. Hægt er að nota farða strax eftir meðferð.
• Mikilvægt er að öll ummerki hafi gefið sig áður en farið er í sól. Sé það ekki gert er mögulegt að fram komi litamunur í húðinni sem getur tekið svolítinn tíma að hverfa. Lýst hefur verið að slíkur litur þurfi ekki að gefa sig fullkomlega.
• Flestir finna fyrir vægum sting á meðan á meðferð stendur. Fyrir kemur að húðin sé deyfð fyrir meðferð með deyfikremi sem sett er á hana fyrir meðferð.
• Allir lasermeðferðir geta mögulega valdið örum en þau heyra til algjörra undantekninga. Lasermeðferð er örugg í réttum höndum. Hún krefst umsjónar eða meðferðar sérfræðilæknis sem getur TAFARLAUST gripið inn í verði vart við aukaverkanir.

Öryggisviðvörun! Af öryggisástæðum er lasermeðferð í fegrunarskyni bönnuð á Íslandi án aðkomu læknis með viðeigandi sérfræðimenntun svo sem húðlæknis eins og krafist er í Danmörku. Til eru ólöglegir heilbrigðisstarfsmenn svo sem læknar eða hjúkrunarfræðingar svo og snyrtifræðingar með slíka starfsemi.

3. Meðferð með Velashape III

Hér eru á ferðinni 2 aðferðir í sömu meðferð:

  • Útvarpsbylgjur (radio-frequency) sem mynda hátíðnirafsegulorku (high-frequency electromagnetic energy) og
  • Púlssog (pulsed vaccum).

Þessar aðferðir eru notaðar gegn sömu ástæðum og fractional laserar hér fyrir ofan fyrir utan litabreytingum í húð vegna sólar og vegna húðsvertingar (melasma).

Grein:

Velashape III er einnig beitt aukalega með:

  • Innrauðu ljósi (infra-red light) og
  • Rúllubúnaði (mechanical rollers)
  • gegn appelsínuhúð.

Grein:

4. Örnálameðferð (microneedling)

Þessar aðferðir eru notaðar gegn sömu ástæðum og fractional laserar hér fyrir ofan fyrir utan að þeim er ekki beitt gegn litabreytingum í húð vegna sólar og gegn húðsvertingu (melasma).

Grein:

5. Aðgerð

Af athygli kann að vera:

Greinar: