Sími 544 4450Grensásvegur 13, 108 Reykjavík
Bóka tíma

Húðflúrseyðing

Húðflúrseyðing fer fram með sérstökum orkulaser sem gefur laserljósið í stuttum púlsum. Okkar laser gefur 2 púlsa í hverju skoti, og þar sem „venjulegir“ laserar vinna á svörtum og rauðum litum vinnur okkar laser á öllum litum.

Í hnotskurn

  • Til eru mismunandi gerðir lasera á markaðinum
  • Við notum aðeins lasera í hæsta mögulega gæðaflokki
  • Þetta eykur árangur meðferðar og dregur úr aukaverkunum
  • Mat sérfræðilæknis fer ætíð fram fyrir meðferð

Hvar í húðinni vinnur meðferðin?

HúðþekjaLeðurhúðHúðbeður (fitulag)Vöðvi
Hvar í húðinni?

Húðflúrseyðing

Laserinn sprengir litaagnirnar í minni agnir sem auðveldar átfrumum að fjarlægja húðflúrið. Okkar laser gefur 2 púlsa í hverju skoti og vinnur á öllum litum.

Svæði
Litarefni sem bundist hefur leðurhúðinni.
Eftir meðferð
Flúrið dofnar smám saman á meðan á meðferð stendur.
Fjöldi skipta
Fjöldi meðferða er mismunandi eftir húðflúri og einstaklingi.
Húðflúr, staða 01: UpphafHúðflúr, staða 02: Meðferð hafinHúðflúr, staða 03: Greinileg framvindaHúðflúr, staða 04: Nýjasta staða
Raunverulegt dæmi

Gangur meðferðar

Myndirnar sýna hvernig húðflúrið dofnar smám saman hjá okkur á meðan á meðferð stendur. Árangur og fjöldi meðferða er mismunandi eftir húðflúri og einstaklingi.

Verð

Húðflúrlaser: svartur, dökkblár, rauður, brúnn og appelsínugulur

Venjulegir laserar markaðarins vinna á þessum litum með 532 nm og 1064 nm bylgjulengdum.

Svæði / verklýsing27 ára og eldri3 skipti, 15% afsl.Yngri en 27 ára
2,5 × 2,5 cm eða minna21.000 kr.17.850 kr.17.850 kr.
5 × 5 cm eða minna25.000 kr.21.250 kr.21.250 kr.
Allt að 10 × 10 cm30.000 kr.25.500 kr.25.500 kr.
Allt að 15 × 15 cm38.000 kr.32.300 kr.32.300 kr.
Allt að 20 × 20 cm60.000 kr.51.000 kr.51.000 kr.
Stærra en 20 × 20 cmTilboðÁ ekki viðTilboð
Augabrúnir28.000 kr.23.800 kr.23.800 kr.
EMLA deyfing (mjög óvanalegt að þurfi)9.000 kr.Á ekki við9.000 kr.

Húðflúrlaser: ljósblár, fjólublár og grænn

Venjulegir laserar markaðarins vinna EKKI á þessum litum. Við notum sérstaka dye lasera sem vinna í 585 nm eða 650 nm eftir því hvað við á.

Svæði / verklýsing27 ára og eldri3 skipti, 15% afsl.Yngri en 27 ára
2,5 × 2,5 cm eða minna34.118 kr.29.000 kr.29.000 kr.
5 × 5 cm eða minna38.000 kr.32.300 kr.32.300 kr.
Allt að 10 × 10 cm41.000 kr.34.850 kr.34.850 kr.
Allt að 15 × 15 cm53.000 kr.45.050 kr.45.050 kr.
Allt að 20 × 20 cm67.000 kr.56.950 kr.56.950 kr.
Stærra en 20 × 20 cmTilboðÁ ekki viðTilboð
Augabrúnir39.000 kr.33.150 kr.33.150 kr.
EMLA deyfing (mjög óvanalegt að þurfi)9.000 kr.Á ekki við9.000 kr.

Verð pr. skipti. Sjá alla verðskrána og reikna áætlað verð.

Nánar um meðferðina

Fræðsluefnið á vefnum er samið af Bolla Bjarnasyni dr. med., húð- og kynsjúkdómalækni.

Frekari upplýsingar

Tattoo eyðing er nú á tímum gerð með sérstökum orkulaserum sem gefa laserljósið stutt. Við vorum fyrst á Íslandi með slíka lasera en í dag notum við lasera sem gefa 2 púlsa í hverju skoti til að auka enn frekar árangur meðferðar.

Hvað er húðflúr og hvaða gerðir eru til af því?

Húðflúr er litarefni sem komið hefur verið fyrir í húðinni. Oftast velur fólk sér tattoo en þau geta líka orðið til óviljandi, t.d. eftir slys þar sem litarefni nær að bindast leðurhúðinni (dermis).

Til að húðflúr séu varanleg þarf litarefnið að bindast leðurhúðinni. Litarefni sem hafna eingöngu í húðþekjunni (epidermis) ná ekki að festast varanlega í húðinni því þekjan endurnýjar sig.

Hér verður fjallað um brottnám húðflúrs úr leðurhúðinni.

Lasermeðferð

Verkunarháttur lasera

Nokkrar gerðir lasera eru til á markaðinum til að eyða húðflúrum. Þær byggja á gjöf laserljósgeisla inn í húðina af þeirri bylgjulengd sem viðkomandi litur sýgur til sín. Við það myndast orka sem sprengir upp litaagnirnar í flúrinu í minni agnir sem auðveldar átfrumum (macrophages) að fjarlægja húðflúrið.

Flestir laserar hafa ljós af 1064 nm og 532 nm bylgjulengdum sem vinna á svörtum og rauðum. Okkar laser er einnig „dye“ laser sem getur einnig unnið í 585 nm og 650 nm og unnið þannig á öllum litum.

Meðferðin er ekki sértæk fyrir húðflúrslitinn. Sé þannig valin bylgjulengd fyrir rauðan lit getur rauður litur í æðum einnig dregið til sín laserljósið. Þetta kemur þó ekki að sök nema um svartan lit sé að ræða hjá dökku fólki en áhættumat sérfræðilæknis fer ætíð fram fyrir meðferð.

Grunnatriði varðandi alla lasera er að þeim takist að gefa nægjanlega ljósorku á viðeigandi stað í húðinni þannig að orkan valdi nægjanlegu hnaski á því sem henni er beint að. Þetta er mjög mikilvægt varðandi húðflúrsmeðferð. Einnig er mjög mikilvægt að laserljósið sé gefið í stuttan tíma í einu til að aftra öramyndun og myndun litamunar í húðinni. Okkar laser gefur 2 púlsa í hverju skoti af stuttu ljósi sem eykur árangurinn enn frekar. Allir laserar þurfa að vera af hæsta mögulega gæðaflokki eigi þeir að gagnast vel. Margir laserar á markaðinum eru ekki af slíkum gæðum og tekst því ekki að fjarlægja húðflúr vel og varanlega og án aukaverkana.

Hvers er að vænta af meðferð?

Markmið meðferðarinnar er að fjarlægja eins mikinn lit og hægt er. Stundum fer liturinn algjörlega en stundum minnkar hann mjög mikið niður.

Aðgerðir fyrir og eftir lasermeðferð

Læknisfræðilegar ástæður geta staðið í vegi fyrir lasermeðferð.

  • Mikilvægt er að sérfræðilæknir meti alla fyrir meðferð.
  • Forðast skal sólarljós a.m.k. í viku fyrir meðferð og helst í 4 vikur eftir hana. Sólartengdur roði eða brúnka þarf að hafa horfið algjörlega fyrir meðferð.
  • Brúnkukrem þurfa að hafa horfið algjörlega úr húðinni fyrir meðferð.
  • Æskilegt er að húðin verði ekki fyrir miklum hita rétt fyrir og eftir meðferð t.d. með heitum böðum.
  • Sérfræðilæknir tekur afstöðu til hvort lyfjameðferð þurfi að stöðvast á meðan á meðferð stendur.

Hvernig fer meðferðin fram?

Til að tryggja öryggi þitt eru sett á þig sérstök gleraugu sem vernda augun fyrir laserljósinu. Góð regla er að hafa augun lokuð á meðan á meðferð stendur en það er engin skylda. Í algjörum undantekningartilfellum er húðin deyfð með deyfikremi fyrir meðferð.

Laserhausinn er látinn leika um meðferðarsvæðið eftir ákv. reglum. Hver meðferð tekur um 15 – 30 mín. eftir stærð meðferðarsvæðisins.

Óháð laserum þarf alltaf nokkrar meðferðir fyrir varanlega eyðingu húðflúra. Tímabil á milli meðferða er oft um 4 vikur en má vera lengra. Húðin þarf að hafa jafnað sig fyrir meðferð og lengd tímans er líka hugsuð m.t.t. að átfrumum hafi tekist að eyða upp þeim litaögnum sem laserinn sprengdi upp við síðustu meðferð.

Hvenær kemur árangur meðferðar fram og hve lengi varir hann?

Árangur kemur fram hægt og rólega og er hann varanlegur.

Kostir lasermeðferðar

  • Árangur lasermeðferða er yfirleitt mjög góður með nútíma læknalaserum.
  • Lasermeðferðir gegn húðflúrum eru sársaukalitlar með þeim búnaði sem við notum. Þær eru áhættulitlar að undangengnu mati sérfræðilæknis.
  • Unnt er að fara beint til vinnu að lokinni meðferð.

Gallar lasermeðferðar

  • Meðferðir geta valdið vægum roða sem fer hratt eða gengur yfir á nokkrum dögum. Mikilvægt er að roði hafi gefið sig áður en maður fer í sól. Sé það ekki gert er mögulegt að fram komi litamunur í húðinni sem getur tekið svolítinn tíma að hverfa. Tilfellum hefur verið lýst þar sem liturinn gaf sig ekki fullkomlega.
  • Allir laserar geta valdið oflitun (hyperpigmentation) eða vanlitun (hypopigmentation) húðarinnar. Þetta er ekki algengt en líkindi þessa eru minnkuð verulega með mati sérfræðilæknis á fólki fyrir meðferð og réttri beitingu hágæðabúnaðar.
  • Allir laserar geta mögulega valdið örum en þau tilheyra til algjörra undantekninga sé rétt að málum staðið. Þeir geta líka valdið litlum yfirborðssárum sem eru sársaukalaus og gróa á nokkrum dögum. Halda þarf slíkum sárum hreinum og þurrum á meðan húðin lokar þeim.
  • Notkun lasera er örugg í réttum höndum. Hún krefst umsjónar eða meðferðar sérfræðilæknis sem getur TAFARLAUST gripið inn í verði vart við aukaverkanir.

Öryggisviðvörun! Af öryggisástæðum er lasermeðferð í fegrunarskyni bönnuð á Íslandi án aðkomu læknis með viðeigandi sérfræðimenntun svo sem húðlæknis eins og krafist er í Danmörku. Til eru ólöglegir heilbrigðisstarfsmenn svo sem læknar eða hjúkrunarfræðingar svo og snyrtifræðingar með slíka starfsemi.

Skurðaðgerð

Lítil húðflúr er stundum freistandi að taka með skurðaðgerð. Galli við slíkar aðgerðir eru ör (scars) sem þær skilja eftir. Gróandi fólks er misjafn, sumir fá lítt sýnileg ör á meðan aðrir fá sýnilegri ör. Ör er hægt að meðhöndla sé ástæða til þess.

Myndband

Greinar

Litalosun í gegnum yfirhúð (Trans-epidermal pigment release)

Tattooeyðing án lasers hefur verið reynd í gegnum tíðina. Þessar aðferðir byggja á að valda einhvers konar hnjaski svo sem með litlum götum inn í leðurhúðina til að unnt sé að koma þar fyrir efni sem fær litinn til að ganga upp á yfirborð húðarinnar. Við gerðum tilraunir með þetta hér áður fyrr en fengum ekki fram nægjanlega góðan árangur.

Myndband

Útvarpsviðtal

Sjá einnig greinar