Sími 544 4450Grensásvegur 13, 108 Reykjavík
Bóka tíma

Brúnir sólarblettir

Brúnir sólarblettir eru tilkomnir vegna geislunar sólar og myndast oft á andliti, handabökum og handleggjum. Þeir eru góðkynja en mikilvægt er að sérfræðilæknir greini þá frá öðrum meinum.

Í hnotskurn

  • Lasermeðferð getur verið áhrifamikil gegn þessum blettum og er sársauka- og hættulaus
  • Létt frysting kemur líka til greina
  • Hægt er að fara beint til vinnu eftir meðferð

Hvar í húðinni vinnur meðferðin?

HúðþekjaLeðurhúðHúðbeður (fitulag)Vöðvi
Hvar í húðinni?

Lasermeðferð gegn æðum

Kröftug lasermeðferð eyðir æðunum og minnkar þannig roðann.

Svæði
Háræðar í leðurhúðinni.
Eftir meðferð
Hægt er að fara beint til vinnu eftir meðferð.

Verð

Laser við æðum, roða eða litabreytingum vegna sólskaða

Svæði / verklýsing27 ára og eldri3 skipti, 15% afsl.Yngri en 27 ára
Andlit29.000 kr.24.650 kr.24.650 kr.
Andlit og háls39.000 kr.33.150 kr.33.150 kr.
Svæði hvar sem er, minna en 1 × 1 cm19.000 kr.16.150 kr.16.150 kr.
Háls25.000 kr.21.250 kr.21.250 kr.
Bringa30.000 kr.25.500 kr.25.500 kr.
Bringa og andlit45.000 kr.38.250 kr.38.250 kr.
Ganglimir, lítið svæði29.000 kr.24.650 kr.24.650 kr.
Ganglimir, útbreitt39.000 kr.33.150 kr.33.150 kr.

Verð pr. skipti. Sjá alla verðskrána og reikna áætlað verð.

Nánar um meðferðina

Fræðsluefnið á vefnum er samið af Bolla Bjarnasyni dr. med., húð- og kynsjúkdómalækni.

Hvað eru brúnir sólarblettir?

Brúnir sólarblettir eru tilkomnir vegna geislun sólarinnar. Þeir hafa tilhneigingu til að myndast á þeim stöðum þar sem sólin fær að skína á húðina eins og í andliti, á handabökum og á handleggjum. Vefjafræðilega er um að ræða aukningu á fjölda sortufruma (melanocytes) í slíkum blettum.

Vakin skal athygli á því að hundruðir bletta eru til. Ráðleggjum við læknisfræðilegt mat á öllum blettum því fjölbreytileiki þeirra er mikill og sumir þeirra kunna að vera hættulegir. Meðferð þeirra er oft ólík eftir tegundum. Hér verður eingöngu fjallað um brúna góðkynja sólarbletti (lentigo solaris).

Hvað er til ráða?

Meðferð með örnálum (microneedling)

Meðferð með frystingu

Mjög létt frysting eyðir oft þessum blettum. Strax eftir meðferð er bólgu eytt með bólgueyðandi kremi. Mikilvægt er að aftra því að sól nái að skína á blettina í nokkra daga eftir meðferð t.d. með sólarvarnaráburði eða að klæða sólina af sér. Meðferðir eru endurteknar á u.þ.b. 4-6 vikna fresti í nokkur skipti eins og þurfa þykir þar til blettirnir eru horfnir.

Brennsla

Unnt er að brenna blettina burtu með sýru en meðferðarúrræðin tvö hér ofar hafa leyst þetta meðferðarform af hólmi.

Lasermeðferð gegn brúnum meinum

Sjá einnig greinina: