Í hnotskurn
- Tæknin beitir tvískauta útvarpsbylgjum, innrauðu ljósi, púlssogi og sérstökum rúllubúnaði
- Meðferðinni er hægt að beita á appelsínuhúð hvar sem er á líkamanum
- Meðferðin er sársaukalaus og hægt er að fara beint til vinnu
- Mat húðlæknis fer fram fyrir meðferð
Hvar í húðinni vinnur meðferðin?
Velashape III®
Tvískautaðar útvarpsbylgjur, púlssog, innrauð ljósorka og vélrænar rúllur hita húðvef og örva myndun kollagens.
- Svæði
- Leðurhúð og fituvefur.
- Eftir meðferð
- Vægur roði. Unnt er að fara beint til vinnu að lokinni meðferð.
Verð
Velashape III®
Við slakri húð, svo sem á kvið, útlimum og undirhöku, og fyrir appelsínuhúð.
| Svæði / verklýsing | 27 ára og eldri | Yngri en 27 ára |
|---|---|---|
| Meðferð á stökum líkamshluta, t.d. kvið, lærum, upphandleggjum eða undirhöku | 39.412 kr. | 33.500 kr. |
| Aukaskipti innan hálfs árs eftir 3 meðferðir, allt að 9 skipti | 34.118 kr. | 29.000 kr. |
| Kviður, 2 meðferðir í sömu komu, eða 2 líkamshlutar í sömu komu | 65.882 kr. | 56.000 kr. |
| Aukaskipti innan hálfs árs eftir 3 meðferðir, allt að 9 skipti (2 líkamshlutar) | 56.000 kr. | 47.600 kr. |
Fitufrysting / kælifitueyðing
Viðvarandi fitufellingar hvar sem er og einnig undirhöku. Oft þarf 5 skipti.
| Svæði / verklýsing | 27 ára og eldri | Yngri en 27 ára |
|---|---|---|
| 1 eða 2 meðferðarhausum beitt samtímis | 92.941 kr. | 79.000 kr. |
Verð pr. skipti. Sjá alla verðskrána og reikna áætlað verð.
Nánar um meðferðina
Fræðsluefnið á vefnum er samið af Bolla Bjarnasyni dr. med., húð- og kynsjúkdómalækni.
• Við mælum með tíma hjá húðlækni til að tryggja rétta greiningu og viðeigandi meðferð
• ATHUGIÐ að til eru meðferðaraðilar á Íslandi án nauðsynlegra leyfa sem krefja viðeigandi sérfræðimenntunar umsjónalæknis
• Þú getur hringt í okkur til að fá tíma hjá húðlækni eða komið beint til meðferðar
Hvað er appelsínuhúð?
Nafnið appelsínuhúð er notað til að lýsa ójafnri húð og kemur samlíkingin frá hrjúfu yfirborði appelsínubarkar. Appelsínuhúð myndast helst á mjöðmum, rasskinnum og yfir læri hjá konum eftir kynþroska. Sumir álita byggingalegan mun skýra kynjamuninn.
Hvernig myndast hún?
Menn hafa ólíkar hugmyndir hvers vegna appelsínuhúð myndast. Ein hugmyndin er að bandvefsstrengir sem skipta fitunni upp í fituhólf þrýsti fitunni upp í áttina að yfirborði húðarinnar og myndi ójöfnu á sama tíma og yfirliggjandi leðurhúð (dermis) þynnist. Truflanir í fituefnaskiptum, eða svokallaður fitukyrkingur (lipodystrophy), getur framkallað appelsínuhúð en einnig truflanir í hormónastarfsemi og blóðrás (blood circulation). Erfðaþættir eru einnig álitnir geta spilað inn í við myndun appelsínuhúðar.
Hvað er til ráða?
Fjölmargar aðferðir hafa verið reyndar til meðferðar, svo sem hljóðfitueyðing (cavitation), útvortis áburðir og skurðaðgerðir. Tækniþróun síðustu ára hefur leitt af sér:
- VELASHAPE III®
- Hljóðfitueyðing (Cavitation, high-intensity focused ultrasound (HIFU eða HIFUS), high-intensity low-freqency focused ultrasound eða focused ultrasound (FUS)).
- Kælifitueyðing (cryolipolysis)
- Meðferð með Elos® (Electro Optical Synergy) og Endermologie®.





