Útlitslækning
Við erum lækningafyrirtæki í Reykjavík sem sérhæfir sig í almennum húðlækningum og lýtahúðlækningum, lasermeðferðum, kynsjúkdómum og tannlækningum.
Því að útlitið skiptir máli
Við leggjum áherslu á að bjóða upp á þægilegt andrúmsloft þar sem fólki líður vel og að veita bestu mögulegu þjónustu við að finna hvaða meðferð hentar hverju sinni.
Á vefnum má bæði finna upplýsingar um þær meðferðir sem hægt er að fara í og almennar fræðslugreinar um húðlækningar. Hér er einnig hægt að hafa samband og panta tíma hjá húðlækni, en við mælum með að fólk geri það áður en það pantar meðferð.
Við vekjum athygli á því að á Íslandi eru dæmi um ólöglega notkun lasera, meðal annars af heilbrigðisstarfsfólki án læknismenntunar. Í mörgum tilfellum er talað um titla á borð við „húðsérfræðingur“, en samkvæmt reglugerð eru lasermeðferðir í fegrunarskyni bannaðar án aðkomu sérfræðilæknis með titil á borð við húðlæknir, húðsjúkdómalæknir eða húð- og kynsjúkdómalæknir.
Kennsla nema í heilbrigðisvísindum
Kennsla nema í heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands fer fram hjá Útlitslækningu.


Framúrskarandi fyrirtæki 2011–2026
Viðurkenning Creditinfo

Um Bolla
Bolli hefur í rúm 20 ár starfað við m.a. lýtahúðlækningar, almennar húðlækningar, barnahúðlækningar, kynsjúkdómalækningar og atvinnuhúðsjúkdómalækningar (húðofnæmi).
- NámVarði doktorsritgerð sína 1999 við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Ritgerðin fjallar um lasertækni og ofnæmi.
- StörfStarfaði á sjúkrahúsum, göngudeildum og læknastofum í Bandaríkjunum, Svíþjóð (Karólínska sjúkrahúsið) og Danmörku í alls 9 ár.
- RannsóknirHefur tekið þátt í fleiri tugum rannsókna og hlotið hátt í 100 vísindastyrki eða vísindaverðlaun, m.a. frá Dermatology Foundation í Bandaríkjunum.
- GreinarHefur ritrýnt fyrir virt húðvísindarit á borð við Journal of Investigative Dermatology og Contact Dermatitis og birt nokkra tugi vísindagreina.
- KennslaKenndi við læknadeild Karolinska Institutet og í Bandaríkjunum, og hefur kennt læknanemum húðsjúkdóma við Háskóla Íslands frá 2001.
- FélögStjórnarmaður í Norðurlandaráði húðlækna og situr í ritstjórn Forum for Nordic Dermato-Venereology. Var formaður Félags ísl. húðlækna í mörg ár.
Fræðsluefnið á vefnum er samið af Bolla.
Senda fyrirspurn til Dr. Bolla





Starfsfólk
Lækningar, húðmeðferðir og tannlækningar undir einu þaki á Grensásvegi 13.
Húðlækningar og húðmeðferðir

Bolli Bjarnason dr. med.
Húð- og kynsjúkdómalæknir

Margrét Birgisdóttir
Snyrtifræðimeistari

Anna María Jónsdóttir
Snyrtifræðimeistari

Hulda Rún Rúnarsdóttir
Snyrtifræðingur
Tannlækningar

Ellen Flosadóttir M.Sc.
Sérfræðingur í tann- og munngervalækningum

Ásgerður Sverrisdóttir
Tannlæknir

Bryndís Björnsdóttir
Tanntæknir
Móttaka

Hlíf Gestsdóttir
Ritari

Þóra Hvanndal
Ritari
